Lög félagsins
Síðast uppfært: Mánudagur, 11. apríl 2011 18:51 Skrifað af: Administrator Sunnudagur, 14. nóvember 2010 14:16
Lög Bliks ljósmyndaklúbbs
1.gr.
Nafn félagsins er: Blik Ljósmyndaklúbbur
Kt: 560508-2200
2.gr.
Heimili félagsins er á Selfossi og varnarþing í Árnessýslu.
3.gr.
Tilgangur félagsins er að efla og styrkja vitund um ljósmyndina, varðveisla á þeim menningarverðmætum sem ljósmyndir eru í víðum skilningi og fleira sem tengist með beinum eða óbeinum hætti ljósmyndun.
4.gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná, t.d. með sýningarhaldi, kynningum, fræðslufundum, ljósmyndaferðum, læra hvert af öðru og fleiru sem eflt getur áhuga og virðingu fyrir þessum miðli. Einnig að leita leiða til að koma verkum sínum á framfæri td. með heimasíðu o.fl.
5.gr.
Stofnfélagar eru: 27
6.gr.
Rétt til veru í félaginu hafa allir þeir, sem áhuga hafa á ljósmyndum, ljósmyndatökum, myndvinnslu, varðveislu, sýningum, framköllun eða öðru sem tengist ljósmyndun á suðurlandi.
7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3. félagsmönnum þ.e. formanni og 2. meðstjórnendum. Kosið skal um einn stjórnarmann árlega, í fyrsta skipti að 2. árum liðnum og árlega eftir það. Stjórnin skiptir með sér verkum. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.
Þrjá varamenn skal kjósa á aðalfundi og 2. skoðunarmenn reikninga.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1) Ávarp formanns
2) Kjör fundarstjóra og fundarritara
3) Skýrsla stjórnar
4) Reikningar lagðir fram af gjaldkera
5) Umræður um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga
6) Reikningar bornir undir atkvæði
7) Lagabreytingar
8) Félagsgjöld ákveðin
9) Kosning stjórnar og skoðunarmanna.
10) Kosning nefnda.
11) Önnur mál
8. gr.
Aðalfundur skal haldinn fyrir 15. apríl ár hvert. Starfstímabil félagsins er 1. apríl – 31.mars ár hvert, en reikningsskil miðast við almanaksár. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa athvæðarétt á aðalfundi.
9. gr.
Árgjald félagsins er 5000kr.- og skal það innheimt fyrir 1.mai. 50% afsláttur fyrir aðra heimilisfasta á sama lögheimili.
Félagsmenn 18 ára og yngri, skulu undanþegnir félagsgjaldi, ef einhver sem er eldri en 18 ára og á sama lögheimili, er í félaginu.
10.gr.
Félagið getur aflað fjár með styrkjum, gjöfum, þátttökugjaldi á sýningum og útrásarverkefnum.
Félagið getur ekki skuldbundið félagsmenn sína á nokkurn hátt.
11.gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi.
Leggist félagið niður af einhverjum ástæðum skulu eignir þess ef einhverjar eru renna til Ljósmyndadeild Þjóðminjasafn Íslands. Ákvörðun um slit félagsins verður ekki tekin nema með meirihluta atkvæða fundarmanna.
12.gr.
Markmið áhugamannafélagsins er ekki að afla félagsmönnum eigna og samrýmist það því ekki tilgangi slíks félags að ráðstöfun eigna við slit þess sé til félagsmanna sjálfra.
Lög þessi voru samþykkt á fundi félagsins og öðlast gildi við undirskrift stjórnar.
Selfossi 10. maí 2008
______________________________
Hvar og hvenær,
Ragnar A. Magnússon, 110464-3209
______________________
Stofnandi formaður, kt.
Sólveig Stolzenwald, 040552-4219
______________________
Stofnandi gjaldkeri, kt.
Guðjón Guðvarðason, 190153-4799
______________________


