Sunnudagur, maí 20, 2012
   
Text Size

Ferðin okkar 19 mars

 Ferðin okkar þann 19 mars.



 

 

Ljósmyndaferð Bliks
laugardaginn 19. mars 2011


Fossar · Hellar · Keppni · Kleinur

Mæting:
Við hittumst á planinu vil OLÍS á Hellu kl. 10:00.


Fossarnir í Ytri-Rangá:

Við heimsækjum tvo einstaklega fallega fossa í Ytri-Rangá og æfum okkur í
fossamyndatökum: Ægissíðufoss sem eru neðan við Hellu og Árbæjarfossa ofan við Hellu.


Gunnarsholt:
Við heimsækjum Landgræðsluna í Gunnarsholti og skoðum aðeins, fáum kynningu hjá
Jóni Ragnari. Þar verður ljósmyndakeppni. Allir taka myndir af sama hlutnum, mega ráða
uppstillingunni. Myndirnar sýndar á næsta fundi og fundarmenn velja bestu myndirnar.


Gunnlaugsskógur:
Við förum í Gunnlaugsskóg og myndum tré og runna. Ef við erum óskaplega heppin getum
við rekist á ísbjörn, ljón eða gíraffa. Ef svo fer er betra að hlaupa, ekki mynda.


Hellar:

Því næst er hellaskoðun og við æfum okkur að nota flass. Takið með ykkur sprittkerti, 5 – 10

stk. á mann.

Hressing:
Að lokum förum við í vöfflu- eða kleinupartý heima hjá Jóni Ragnari. Tilkynnið þátttöku til


Kjartans ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) eða Jóns Ragnars ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) fyrir 16. mars.

Kærar kveðjur,

Jón Ragnar Björnsson


Kjartan Már Hjálmarsson
Gistiheimilið Nonni

Hrísholti 18
Arnarsandi 3

800 Selfoss
850 Hella

Sími 898 1962
Sími 894 9953

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.