Sunnudagur, maí 20, 2012
   
Text Size

Rangárvellir 19 mars

Ljósmyndaferð á Rangárvelli, ferðasaga.



Laugardaginn 19. mars 2011 lögðum við í hann frá planinu okkar góða austur á Hellu. Þegar þangað var komið slógust fleiri í hópinn. Við vorum nú tólf talsins sem ætluðum að gera okkur glaðan dag. Á dagskránni var að skoða Ægissíðuhelli, Ægissíðufoss, Árbæjarfoss og Gunnarsholt þar sem Landgræðslan er til húsa.

Fyrst fórum við í hellinn þar sem margar skrítnar myndir urðu til enda aðstæður til ljósmyndunar afar sérstakar. Kveikt var á kertum til að hafa einhverja skímu.

Næst lá leiðin svo að Ægissíðufossi en ekki vildu betur til en svo að tveir af fararskjótum okkar festu sig í slabbi á vegslóðanum að fossinum. En Jón Ragnar á sínum fjallabíl dró þá báða upp eins og að drekka vatn. Svo var fossinn myndaður í bak og fyrir þrátt fyrir að birtuskilyrði væru ekki upp á það besta; dumbungur, lágskýjað og smá rigning.

Því næst, um hádegisbil, fórum við að Gunnarsholti þar sem við snæddum nestið okkar. Þar fór einnig fram ljósmyndakeppni sem gekk út á það að mynda einn ákveðinn hlut sem enginn vissi hver var fyrirfram en kom svo í ljós að voru frækörfur á stuðlabergi. Afraksturinn var svo sýndur og dæmdur á næsta fundi. Jón Ragnar, Blik-félagi og starfsmaður Landsgræðslunnar, fylgdi okkur um salarkynni stofnunarinnar og leiddi okkur í allan sannleikann um þá starfsemi sem þar fer fram.

Þá var stefnt á næsta foss, Árbæjarfoss. Nú var farið að létta til og sú gula lét sjá sig endrum og sinnum. Þar urðu margar fallegar myndir til, sumar teknar á tíma til að fá mjúka slikju á rennslið.

Nú var komið garnagaul í mannskapinn (aftur) og stefnan tekin á Gistiheimilið Nonna þar sem Jón Ragnar er hæstráðandi og búsettur. Hann bauð okkur upp á vöfflur með sultu og rjóma, kakó og kaffi. Þarna sátum við drykklanga stund og hugmynd kviknaði að næstu ferð; helgarferð til Vestmannaeyja í lok maí. Svo var haldið heim á leið og allir saddir og sáttir eftir skemmtilegan dag.

Með þakklæti fyrir samveruna.

Frá ferðanefnd.