Miðvikudagur, febrúar 22, 2012
   
Text Size

Frá ritstjóra

Ljósmyndakeppni Evropustofu

Ég vil benda Blikfélögum á ljósmyndakeppni sem er í gangi á vegum Evropustofu.                 Skilafrestur er til 23.59 þann 6. mars. Nánar má lesa um keppnina ef smellt er á meðfylgjandi tengil. http://www.evropustofa.is/frettir/frettir/article/ljosmyndasamkeppni-evropustofu-skilafrestur-framlengdur-til-6-mars.html
 

Að minnka mynd í Photoshop

Hvernig skal minnka mynd í Photoshop.
Af fenginni reynslu þá hef ég tekið afrit af myndum sem ég nota í tilraunastarfsemi áður en ég hefst handa. Það kemur í veg fyrir að ég glati frumeintakinu.


Opnið forritið, farið í file og open. Sjá mynd1



Finnið myndina sem minnka skal. Tvísmellið á myndina  eða smellið einu sinni á mynd og síðan open




Þegar mynin hefur verið opnuð er farið í Image og valið Image Size



Þá þarf að velja hver stærð myndarinnar skal vera. Það er slegið inn í reitina Widt 600 og Height 400 í rammanum Pixel Dimensions.  Sjá dæmi á mynd. Í Resolution er hægt að velja þéttleika punktana sem eru aðeins 72 á tommu hér. Smellt á OK 




Hér er myndin komin í valda stærð og þá þarf að vista hana þannig. Farið í File og Save As


Mappan sem varðveita skal myndina er valin, myndinni gefið nafn og smellt á save.