Miðvikudagur, febrúar 22, 2012
   
Text Size

Ágrip af fundinum okkar 20/4.

Félagsfundurinn 20/4

 

 

Aldeilis fínn fundur.

Hún Anný, okkar byrjaði með sínar myndir,  skemmtilegar, ritstjóri hefur alltaf gaman af öllu sem er öðruvísi en daglegt brauð.

Til hamingju Anný,  og endilega haltu áfram með PS. tilraunir.

Svo var  það hann Alex.......Lunkinn strákurinn,  verður einhvern tímann frábær  ( er það auðvitað nú þegar,  en.....ófermdur enn???). 

Þarna er góður efniviður,  ritstjóra er það heiður að fá að starfa í félagsskap með honum.

( já ég segi það hreint út!!!)

Ármann stjórnaði fundi af alkunnum röggskap.

Eftir kaffi komu félagsmenn með myndir,  ma.  nafni minn Emilsson og Georg.

Ritstjóra fannst þetta skemmtilegt,  ákaflega fjölbreytt,  ferða myndir,  listaverk,  fuglamyndir og bara nefndu það.

Ragnar gerði grein fyrir störfum sýningarnefndar.

Jón Ragnar kynnti Vestmannaeyjaferðina.

Og svo var örugglega miklu meir,  sem ég man ekki í svipinn,  ég var nefnilega að berjast við tölvuna okkar á fundinum gekk ekki vel með hana.

Jú,  okkur áskotnaðist þessi fína verkfærataska frá Eiríki Þór,  kunnum honum bestu þakkir fyrir,  vantaði nauðsynlega fyrir snúrur oþh.  ( í töskunni var ma. framlengingarsnúra).

Ritstjóri er vís með að nota aðstöðu sína til að halda síðunni lifandi með viðlíka hugleiðingum,  ef andinn hellist yfir hann.

Að endingu,  bendi ykkur á sölusíðuna kostar ekkert að vera með,  allt að græða ef af sölu verður   Icelandicphotos.is

Enn vantar okkur gamlann fataskáp eða einhverja viðlíka hyrslu undir dótið okkar.  Þar sem hann verður í óupphituðu húsnæði er best að hann sé nokkuð rykheldur og úr timbri.

Endilega leitið nú í kring um ykkur.

Félagskveðjur frá Guðjóni.