Skýrsla formanns f.2010
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 12. apríl 2011 09:57 Skrifað af: Guðjón Guðvarðarson Laugardagur, 09. apríl 2011 17:36
Aðalfundur fyrir árið 2010
Aðalfundur Bliks ljósmyndaklúbbs haldnn á Landvegamótum 6. april 2011 kl. 19:30
Á árinu 2010 voru haldnir 19 fundir / ljósmyndakvöld. Mæting var að meðaltali 15 til 20 manns sem er um 5% mæting félagsmanna. Ýmsir utanaðkomandi fyrirlesarar tengdir ljósmyndum voru fengnir á fundina. Austurvegur 56 Selfossi er nú að verða einskonar félagsheimili Bliks og viljum við nú færa stéttarfélögunum á Suðurlandi bestu þakkir fyrir frí afnot af húsnæðinu sem er okkur dýrmætt.. Einnig héldum við fund í Flugbjörgunarhúsinu Hellu og Rauðakross húsinu Hveragerði að kostnaðarlausu.
Fimm stjórnarfundir voru haldnir .
Margir vinnufundir vegna undirbúnings ljósmyndasýninga og uppsetningu þeirra.
Sýningar voru á Vor í Árborg haldin á Hótel Selfoss, heiti sýningarinnar var Suðurland í öllu sýnu veldi.
Sú sýning fór svo örlítið stækkuð í Perluna og síðan sl haust á Hótel Örk og er þar enn.
Sýningin Blóm í bæ Hveragerði, myndir teknar á hátíðinni Blóm í bæ sýndar á Blómstrandi dögum á Hótel Örk Hveragerði. Blik fékk styrk frá Hveragerðisbæ til þessarar sýningar upp á kr. 70.000.- Gaman fyrir félaga að taka þátt í svona verkefni þökkum Hveragerðisbæ.
Blik fékk á starfsárinu styrk frá Menningarráði Suðurlands upp á kr.200.000.-
Keyptur var góður myndvarpi fyrir BLIK
Farið var í 2 ljósmyndaferðir. Fyrri ferð til Víkur og gist eina nótt sú seinni Gullfoss ,Geysir og Bláskógabyggð. Jólaröllt í desember á Selfossi.
Síðasti aðalfundur var haldinn á Flúðum undir handleiðslu Guðjóns Emilssonar eftir fundinn var farið í gróðurhús og myndað síðan á kaffihús. Við færum Guðjóni bestur þakkir fyrir og einnig hans ekta frú sem bakaði í mannskapinn.
Á aðalfundinum var Guðjón Guðvarðarson endurkjörinn í stjórn. Lög félagsins segja að á hverjum aðalfundi skal kjósa um einn stjórnarmann af þremur.
Ákveðið var að hafa sama félagsgjald áfram kr. 5.000.- einstakling og kr. 7.500.- fyrir hjón.
Einn félaga misstum við á áriun 2010 Geir Valgeirsson, hans er sárt saknað.
Stjórnina skipa Ragnar Magnússon, Guðjón Guðvarðarsson Sólveig Stolzenwald
Varastjórn skal kjósa árlega hana skipa Fjóla , Ármann Ægir og Monika
Sýningarnefnd var mjög virk á árinu hana skipuðu Ragnar, Fjóla, Monika og Wodjazk.
Ferðanefnd var einnig virk Hana skipuðu Kjartan Hjálmarsson. Jón Ragnar Björnsson.
Kynningarnefnd skipa Magnús Hlynur, Sigurður Sigmundsson, og Sólveig Stolzenwald
Heimasíðunefnd var Guðjón Guðvarðason, Ragnar Magnússon, Sólveig Stolzenwald og Ármann Ægir.
Ritnefnd var Kjartan Már Fjóla, og Sólveig Stolzenwald


