Fundargerð aðafundar 2011
Skrifað af: Guðjón Guðvarðarson Föstudagur, 15. apríl 2011 11:42
Aðalfundur Bliks, ljósmyndaklúbbs haldinn á Landvegamótum, Rangárþingi ytra miðvikudaginn 6. apríl 2011.
Á fundinn voru mættir voru 23 félagar. Þá var gengið til dagskrár.
1. Formaðurinn Ragnar A. Magnússon setti fund kl. 20:10.
2. Ármann Ægir Magnússon var skipaður fundarstjóri og Gyða Guðmundsdóttir ritari.
3. Formaður klúbbsins Ragnar A. Magnússon flutti skýrslu stjórnar. Þar kom m. a. fram að góð mæting hefur verið að jafnaði á fundi í vetur sem haldnir hafa verið annan hvern miðvikudag í mánuði. Flestir fundirnir voru haldnir á Austuvegi 56 á Selfossi, einn var haldinn í Rauðakrosshúsinu í Hveragerði og einn í húsi Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu.
Farið var í tvær ljósmyndaferðir sem tókust frábærlega vel. Þrjár ljósmyndasýningar voru haldnar sú fyrsta á Selfossi og síðan næsta í Perlunni í Reykjavík og ein í Hveragerði sem reyndar stendur enn. Einnig komu nokkrir góðir gestir á fundi með fræðslu og myndasýningar.
Menningarráð Suðurlands styrkti klúbbinn veglega um kr. 200 þús. Einnig styrkti Hveragerðisbær Blik um kr. 70 þús í tengslum við verkefnið Blóm í bæ þar sem félagar tóku myndir og voru með sýningu á Blómstrandi dögum í Hótel Örk.
Fjárfest var í góðum skjávarpa.
4. Gjaldkeri, Sólveig Stolzenwald flutti skýrslu gjaldkera og skýrði reikinga.
5. Þá var boðið upp á umræður um skýrslurnar. Félagar lýstu ánægju með störf stjórnarinnar og var þeim þökkuð vel unnin störf með lófaklappi. Nokkrar umræður urðu um félagsgjöldin og dræm skil þeirra til klúbbsins.
6. Endurskoðaðir reikningar voru síðan bornir undir atkvæðagreiðslu og þeir samþykktir samhljóða.
7. Lagabreytingar: Engar.
8. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjöld kr. 5,000- fyrir einstakling og 7,500.- fyrir hjón var samþykkt samhljóða.
9. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga: Úr aðalstjórn átti að ganga Sólveig Stolzenwald og var hún einróma endurkjörin. Í varastjórn átti að kjósa þrjá til eins árs. Ármann Ægir Magnússon gaf kost á sér áfram en þær Monika Teresa Jankowska og Fjóla Dögg Þorvaldsdóttir gáfu ekki kost á sér áfram og í þeirra stað voru kosin Eiríkur Þór Sigurjónsson og Gyða Guðmundsdóttir. Moniku og Fjólu þökkuð vel unnin störf.
Skoðunarmenn reikninga voru kosnir, Guðjón Emilsson og Guðjón Egilsson.
10. Kosning nefnda:
Sýningarnefnd: Georg Theodórsson, Guðmar Guðjónsson, Hera Hilmarsdóttir og Inga Heiða Heimisdóttir.
Ferðanefnd: Kjartan Már Hjálmarsson, Jón Ragnar Björnsson og Helga Jörgensen.
Heimasíðunefnd: Guðjón Guðvarðarson, Jón Ragnar Björnsson og Ragnar A. Magnússon.
Framkvæmdanefnd: Magnús Hlynur Hreiðarsson, Ármann Ægir Magnússon, Sigurður Sigmundsson og Sólveig Stolzenwald.
Samþykkt að leggja niður ritnefnd.
11. Önnur mál:
Félagar ræddu vítt og breytt um starfið og margar góðar hugmyndir voru viðraðar. Fjáröflunarleiðir og hugmyndir að verkefnum.
Þá voru félagar hvattir til að skila inn myndum fyrir sýninguna „Séð af sunnlenskum vegum“ sem fyrirhugað er að halda innan skamms.
Einnig var rætt um fyrirhugaða ljósmyndaferð til Vestmannaeyja í lok maí n.k.
Fleira ekki gert og formaður sleit fundi kl. 20:45
____________________________
Gyða Guðmundsdóttir, fundarritari.
____________________________
Ragnar A. Magnússon, formaður.
Spjall yfir kaffi og meðlæti í boði klúbbsins.


