Miðvikudagur, febrúar 22, 2012
   
Text Size

Samningur við Markaðsstofu Suðurlands.

Gott framtak Ármanns,  samningur við Markaðsstofu Suðurlands.
     Kl 11 í morguninn 19.04. skrifaði Ragnar undir samning milli Bliks og Markaðsstofu Suðurlands. Strax eftir páska verður opnaður linkur  af heimasíðu Bliks  www. Blik.is yfir á heimasíðu MSS www.south.is  Þá opnast margar gáttir um allan heim.
    MSS biður um mikið af vetrarmyndum frá suðurlandi öllu. Við erum að auglýsa Blik og markaðssetja  ljósmyndirnar okkar og því mikilvægt að setja þær inn á Blik síðuna.
    Það er verið að vinna í síðunni til að mæta þessu.  Svona síða þarf að vera í stöðugri þróun og er síðunefnd að,  svona eftir því sem tími vinnst til,  en þetta er mikil og tímafrek vinna.  Núna verður lögð áhersla á „Gallery“ hluta hennar.
   Síðunefnd áréttar það sem kom fram hérna áðan,  að félagsmenn verða að vera duglegri að setja inn myndir,  og þá sérstaklega fylgja eftir fyrirspurn ( núna vetrarmyndir ).
   Ef einhver á í vandræðum með að setja inn myndir endilega hafa samband við mig netfangið er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Með páskakveðjum frá stjórn.
Guðjón.

    Ps.  Það má alveg þakka Ármanni fyrir þetta óeigingjarna starf sem hann hefur  unnið fyrir okkur.  
Bk. Guðjón.