Forums
|
Allt milli himins og jarðar um ljósmyndunSpurningar og/eða svör: Hvernig er best að gera þetta? Eða: Svona geri ég! |
| Public write access is disabled. Please login or register |
![]() | Last post |
| Skrafað | » Allt milli himins og jarðar um ljósmyndun | » Vestmannaeyjaferð, gosmyndir 1973 |
![]() 2 posts --- Location: Selfoss Iceland |
21.05.2011 12:39Vestmannaeyjaferð, gosmyndir 1973Ég talaði við Sigmar Pálmason (Bóa) amatör-ljósmyndara í Vestmannaeyjum (við erum systkinasynir) um það hvort við mættum skoða myndirnar hans sem hann tók í gosinu 1973 og var með á ljósmyndasýningu fyrir 2 árum í tengslum við goslokahátíðina þá, sem ég skoðaði. Hann tók vel í það en hann er staddur erlendis og verðir þar fram yfir mánaðamót. Svo er hann líka búinn að selja flestar myndirnar þannig að það er kannski ekki nikið að sjá. Hins vegar benti hann mér á að tala við Guðmund Sigfússon, sem prentar myndirnar hans út. Hann er með aðstöðu heima hjá sér og var fús að sýna okkur myndirnar en fannst svolítið mikið að fá 17 manns í litla herbergið sitt til að skoða myndirnar af tölvuskjá. Hann vildi frekar brenna myndirnar á disk og gefa okkur og við gætum skoðað þær þannig í ró og næði. Þær eru með vatnsmerki og í lítilli upplausn en ef við viljum kaupa einhverja er ekkert mál að prenta út. Myndirnar tók Bói á litla instamatic-vél sem hann hafði alltaf meðferðis við vinnu sína við hreinsun í og eftir gosið 1973. Kjartan Már |
![]() 12 posts --- Location: Hella Iceland Jón Ragnar Björnsson |
24.05.2011 15:23 Re: Vestmannaeyjaferð, gosmyndir 1973 Þetta er skemmtilegt. Við skulum skoða myndirnar hans í EyjumJónerr www.bbiceland.com |
| Skrafað | » Allt milli himins og jarðar um ljósmyndun | » Vestmannaeyjaferð, gosmyndir 1973 |

