Viðburðir

Félagsfundir
Blik heldur félagsfundi á tveggja vikna fresti frá september til maí. Á þeim fundum er leitast við að fá fyrirlesara með fræðsluefni varðandi ljósmyndun. Einnig koma ljósmyndarar, lærðir sem leiknir og sýna okkur afrakstur starfa sinna.

Sófafundir _ Dótafundir
Sófafundir _ Dótafundir eru haldnir um það bil einu sinni í mánuði frá september til maí. Á þessum fundum koma félagar með sínar myndavélar, linsur og fylgihluti. Alt frá öflugustu atvinnumanna tækjum til hinna smæstu fylgihluta. Fundir þessir eru hugsaðir til að miðla og sækja þekkingu á viðkomandi tækjum.

Ljósmyndaferðir
Á hverju ári er stefna sett á þrjár til fjórar ljósmyndaferðir. Þá er bæði um skemmri og lengri ferðir að ræða. Myndin hér til hliðar er af nokkrum félögum Bliks í ferð til Færeyja 2019

Sýningar
Ljósmyndaklúbburinn hefur frá stofnun haldíð sýningu í tengslum við Vor í Árborg. Einnig hefur klúbburinn verið með sýningar í Perlunni, Hótel Örk og víðar.